Jájá,er búin að vera slöpp núna í ca 4 daga,og svo í gær þá fann ég ekkert bragð og enga lykt!! Og ég klikkast ef það verður líka á aðfangadag,HALLÓ---jólamaturinn!!
Hvað ef ég finn ekkert bragð? Þá klikkast ég,ég er búin að bíða svoooo spennt eftir hamborgarahryggnum hjá múttu minni,en það er 2 dagar til stefnu.
Við fórum út að borða á fimmtudagskvöldið á primo,með fjölskyldunni hans Atla,og rosa góður matur.Ég fékk mér rómantískt pasta og það var rosa gott,en ég hef farið þangað 2x að borða og ég mæli með þessum stað,góður matur og ekki dýr.
En er ekki allt reddy fyrir jólin hjá ykkur esskurnar? Þetta er allt að koma hjá mér.Marr er ekkert í neitt rosa stuði að jólast þegar marr er slappur,en reyndi að þrífa hérna í gær,og er ca helmingurinn eftir,ég tek þetta í pörtum sjáðu til
En allar jólagjafirnar kommnar í hús,nema ein,svo verður jólatréð skreytt í kveld,skutlað út jólakortunum á morgun,og svo bara að slappa af og hafa það gott
En jíbbí,er að fara til Kanarí 23 jan,og ég bíð spennt
En sindri minn vildi skrifa bréf til jólasveinsins um daginn,,,
"Góði Stúfur,viltu gefa mér prumpuslím í skóinn"
Hehe,bara dúlla
En hafið það gott yfir hátíðina og gleðileg jól öllsömul
Kveð að sinni